Útbúnaður gærdagsins
Jakki - Nytjamarkaðurinn Selfossi // Bolur - Urban Outfitters // Buxur - Fatamarkaðurinn // Skór - Eytys
Ein stutt færsla með myndum af útbúnaði gærdagsins.
Langar að mæla með að kíkja við í Nytjamarkaðnum á Selfossi, hef fundið alls konar gersemar þar þegar ég nenni að leita eftir þeim. Jakkann keypti ég t.d. á heilar 500 kr. einhvern tímann í vetur og hef notað mjög mikið, kjarakaup!
Bolurinn er ca. ársgamall og buxurnar fékk ég að láni frá systur minni. Skórnir eru hins vegar alveg glæný kaup og ég er alveg ofboðslega ánægð með þá, kjarakaup einnig vil ég meina.
Annars langaði mig líka að koma hér inn og segja ykkur frá því að við Gunni erum að leggja af stað í smá ferðalag um Ísland á morgun og ég verð eflaust mjög dugleg að deila frá því á Instagram fyrir áhugasama. Ég mun að sjálfsögðu gera færslu/r um það líka ❤
LOVE
Sesselía