Mæli með: Nakedcph
Ég pantaði í vikunni strigaskó af síðunni nakedcph.com. Naked er ótrúlega flott dönsk verslun sem selur öll helstu sneaker merkin, limited edition strigaskó sem og fatamerki á borð við Sporty&Rich, 7 days active, Soulland, Carhartt og fleira. Þið sem hafið farið til Köben vitið eflaust hvaða verslun þetta er.
Mig langar til að mæla með netversluninni þeirra. Hún er ekki aðeins með ótrúlega gott úrval af flottum vörum heldur eru þær einnig á fínu verði og afgreiddar á ljóshraða. Ég pantaði þessa New Balance strigaskó síðasta þriðjudag og þeir voru komnir heim að dyrum á föstudeginum, aðeins þremur dögum síðar. Hvernig má það bara vera? Ég hef aldrei fengið sendingu erlendis frá á svona stuttum tíma. Algjör snilld!
Skórnir kostuðu 15.802 íslenskar krónur og um 20.000 kr. með tollinum. Verulega ánægð með þessi kaup og þessa verslun og mig langaði til að deila gleðinni með ykkur.
Happy shopping!
LOVE
Sesselía